Ég get nú ekki verið annað en hneiksluð á því hvað sumar stelpur
láta yfir sig ganga...
Tvennt sem þið þurfið að vita í þessu bloggi:
X= hnakkamassa dyravörður í kringum 25 ára. Y=fyrrverandi/núverandi
kærasta hans sem er í FÁ með mér.
Þannig er málið að fyrir u.þ.b. einum og hálfum mánuði vann ég
eina vakt á Glaumbar. Þar var ónefndur dyravörður að vinna sem við
skulum kalla X, hann er í kringum 25 ára. Þegar vaktin var búin
báðu vinir hans mig um símanúmerið mitt fyrir þennan dreng. Mér
fannst þetta svo fyndið miðað við aldur hjá honum að hann hafi ekki
getað spurt sjálfur svo ég gaf þeim númerið mitt.
Daginn eftir og næstu daga byrjaði ég að fá asnaleg sms frá honum á
borð við "
" og "takk fyrir númerið". Ég var ekkert að nenna að
svara honum enda á ég yndislegan kærasta.
En já tíminn leið og hverja einustu helgi og marga virka daga brást
það ekki að ég fékk sms frá honum að spurja hvað ég væri að fara að
gera um helgina o.s.f.v. Tekið skal fram að ég svaraði ekki neinu
af þessum smsum. Svo á aðfaranótt laugardags kl. 6.30 um morgun, ég
var steinsofandi, fékk ég sms frá honum sem í stóð "ég get ekki
hætt að pæla í þér
" Mér fannst þetta bara fyndið hvað hann entist
drengurinn í að senda mér sms en var annars ekkert að kippa mér upp
við þetta.
Á laugardagskvöldið kíkti ég svo smá niðrí bæ með Tinnu og Silvíu
vinkonum mínum. Þar sem við áttum ekki miða á air og sökum
slappleika á Prikinu ákváðum við að kíkja á Glaumbar. Neinei var þá
ekki Mr.X þar. Þetta var eikkað voða kjánalegt því við sögðum varla
hæ við hvort annað en hann ákvað samt að labba svona 10-15 sinnum
fram hjá borðinu þar sem við sátum (hann vinnur í dyrunum!). Eftir
smá stund fékk ég svo sms sem í stóð "hehe tad er satt sem teir
segja tu ert fáranlega flott".
Eina sem ég gat hugsað var bara vááá hvað þessi gaur þarf að
endurnýja hözzlaðferðirnar sínar.
Ekki örvænta þetta blogg fjallar ekki bara um gaura að reyna við
mig því hér kemur hápunktur sögunnar:
Í dag í tíma var ég svo að segja stelpu sem ég þekki frá þessu
og hvað þetta væri glataður gaur. Hún bara haaaaaaaaaaaaa????
heitir hann X?!!! OMG hann er sko NÝhættur með vinkonu minni(köllum
vinkonuna Y). Neinei hafði þá gaurinn ekki átt kærustu allan
tímann. Og ekki nóg með það heldur voru þau nýhætt saman því hann
hafði haldið fram hjá henni. Og ekki nóg með það þá hafði Y einnig
komist að mörgum öðrum stelpum sem þessi gaur var að reyna við. Og
EKKI nóg með það heldur hafði hún þá líka greinst nýlega með
klamydíu og hafði þá ekki sofið hjá neinum öðrum en honum í mjög
langan tíma.
Í næstu frímínútum talaði ég svo við þessa stelpu, Y, sem var með
X. Og þá komst ég að því að hún var í raun enn að hitta hann og
hafði fyrirgefið honum framhjáhaldið. Og að á föstudagskvöldið
hafði hún sofið hjá honum og við komumst að því að hann sendi mér
smsið "ég get ekki hætt að pæla í þér
" innan við klukkutíma frá
því hann svaf hjá henni!
Þegar þarna var komið við sögu var Y orðin öskureið útí þennan
vægast sagt fávita og ákvað að skrópa í skólann til að hitta hann
og láta hann heyra það. Ég var líka orðin virkilega furious fyrir
hennar hönd. Í lok dagsins fékk ég svo að heyra það frá stelpunni
sem hafði verið með mér í tíma fyrr um daginn að Y hefði tekið allt
dótið sem hann átti heima hjá henni og farið með það til hans og
þrusað því í hann. "Jess gott hjá henni! og hún þá ekki hætt að
tala við hann?", spurði ég. Neeiii, æj hann baðst afsökunar og
knúsaði hana og þau eru búin að sættast núna sagði hún þá.
Ég stóð eftir með stórt spurningamerki í andlitinu.
Stuttu seinna fékk ég svo sms frá X sem í stóð: " sorry tetta var
ogedslega rangt af mer ad vera ad tala vid tig. eg er bara
óöruggur. vonandi getum vid verid vinir." Óöruggur my ass segi ég
núna bara!
HVAÐ ER MÁLIÐ? spyr ég nú bara?? Stelpur eruði virkilega að
sætta ykkur við svona gaura sem koma fram við ykkur eins og
SVÍNASKÍT?!? Ég veit alveg að það koma upp vandamál í samböndum og
trúnaðarbrestir, en ALDREI mundi ég falla fyrir svona gaur.